Við líðum hvorki einelti né annað ofbeldi í Breiðda- og Stöðvarfjarðarskóla. Starfsfólk skólans leitast við að fyrirbyggja einelti og ofbeldi og leysa þau mál sem upp koma á eins farsælan hátt og kostur er. Það er einlægur vilji okkar að skólinn okkar sé öruggur vinnustaður og að þar líði öllum vel. Við sýnum nemendum okkar festu og ákveðni en um leið hlýju og virðingu.
Gott samstarf heimila og skóla er lykilatriði í baráttunni gegn einelti. Við leggjum áherslu á að foreldrar séu vel upplýstir um verkefnið og viljum stuðla að aukinni þátttöku foreldra í starfi skólans. Við hvetjum foreldar til að kynna sér áherslur í meðferð eineltismála í handbók um einelti og vináttufærni.
Handbók um einelti og vináttufærni
Verklag í eineltismálum (Uppfærð 2024)
Breiðdalsvík / Stöðvarfjörður Selnesi 25 / Skólabraut 20 Sími: grunnsk. 470 5570/475 9030 Sími: leikskóli 470 5566/475 9050 Netfang: sto@skolar.fjardabyggd.is |
Umsókn um leyfi og veikindatilkynning fer í gegnum Mentor: 470 5570/475 9030 / sto@skolar.fjardabyggd.is