Skólahald mánudaginn 20. janúar

Vegna slæmrar veðurspár, færðar og hættu á snjóflóðum í skriðunum fellur allur skólakstur í Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla niður mánudaginn 20. janúar. Skólahald verður eftir sem áður í heimaskólum nemenda og lýkur því kl. 12:20.

 

ATH ALLT skólahald fellur niður á Stöðvarfirði á meðan það er rafmagslaust.

 

Frístund og leikskóli verða starfrækt eins og venjulega.

Nauðsynlegt er að foreldrar og aðrir forráðamenn nemenda fylgist með veðurspá og meti sjálfir aðstæður og sendi þá ekki í skólann ef tvísýnt er um öryggi vegna veðurs.

Aðstæður varðandi skólahald verða endurmetnar snemma í fyrramálið.